Um þvottur, stærð/lengd og fleira


0kr

Ef þú ert með spurningar um hringjasjölin, greiðslu eða annað er hægt að senda mér email. Undir “hafa samband” er hægt að skrifa email til min.

Ef þú ert í vandræðum með burðarpokann er ég alveg til í að aðstoða þig, Endilega hafa samband við mig. Hjálp er einnig að finna hér:

http://www.tettinntil.no/INSTRUKSJONER.htm

Varðandi stærð þá er 2 m. algengasta stærðin. Hún á að passa sem flestum. En fyrir folk sem notar til dæmis 38 venjulega þá ætti 1,9 m. að vera meira en nógu langt. Annars er líka bara hægt að koma við hjá mér og fá að prufa. Ég er alltaf til í að sauma lengra eða styttra sjal.

Hringjasjölin á myndunum eru of löng á mig, ég nota bara stærð 32/34, þannig að hringjasjölin munu ekki vera svona langar á einhvern sem notar til dæmis stærð 38 eða 40.

Þvottur: Ég mæli með handþvotti. Ef þú ætlar samt að þvo sjalið í þvottavél þá ekki á meiri enn 30°C. Þá er líka mjög mikilvægt að setja til dæmis sokk yfir hringana svo hvorki hringirnir né þvottavélin skemmist. Ég þvæ alltaf efnið á 40°C áður en ég byrja að sauma. Þannig að sjölin eru tilbúinn til notkunar. Þegar búið er að þvo burðapokana, ef þess þarf, þarf að hengja þá upp straks. Ekki setja þau í þurrkara því þá á efnið það til að hnökrast.

Karfa  

(tóm)